Bíóhöllin

 

Bíóhöllin á Akranesi 

Bíóhöllin á Akranesi er eitt elsta kvikmyndahús landsins, byggt árið 1942. Húsið rúmar um 300 manns í sæti og er vel tækjum búið. Húsið er eitt af fáum kvikmyndahúsum utan höfuðborgarsvæðisins með Dolby digital hljóðkerfi. Hljómburður í Bíóhöllinni er af sérfróðum talinn einn sá besti hér á landi og nýtur það sín einkar vel hvort heldur um kvikmyndasýningar eða hljómleika er að ræða.

Kvikmyndasýningar eru í húsinu 1-2 sinnum í viku. Undanfarin misseri hefur Bíóhöllin verið nýtt til ýmissa samkoma, m.a. tónleikahalds, leiksýninga, fundahalda og ýmissa annarra viðburða. Nýting hússins hefur að undanförnu verið að aukast ekki síst vegna mikilla framkvæmda sem fram hafa farið á því og bættrar aðstöðu með nýjum tækjakosti. Samhliða því hafa möguleikar til fjölbreyttari mannfagnaða aukist.

Hægt er að leigja húsið til tónleikahalds, ráðstefna, leiksýninga og ýmissa skemmtana auk þess sem starfsmenn Vina Hallarinnar ehf geta hannað og sett upp dagskrá eftir þörfum hvers og eins.

Rekstraraðili Bíóhallarinnar fyrir hönd Akraneskaupstaðar sem er eigandi hússins, er Vinir Hallarinnar ehf.